Tólf mánaða verðbólga hefur aukist og mælist nú 4,2 prósent

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað um 3,2%. Þetta má lesa úr nýbirtum tölum Hagstofunnar.

„Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júní 2025, er 656,5 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,84% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 526,8 stig og hækkar um 0,90% frá maí 2025,“ segir í frétt Hagstofunnar.

Þá kemur fram að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hafi aukist um 0,7%, verð á flugfargjöldum til útlanda bhafi hækkað um 12,7% og verð á hótelum og veitingastöðum hafi hækkað um 2,3%.

„Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júní 2025, sem er 656,5 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2025.“