„Á tímum þegar samfélagsmiðlar sýna bjagaða og einhliða mynd af heiminum og utanaðkomandi öfl reyna að hafa áhrif á lýðræðislegar kosningar víða um heim og um leið grafa undan stofnunum samfélagsins, hafa hefðbundnir fjölmiðlar verið að veikjast,“ bendir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands á í aðsendri grein á Vísi.
Hún segir að íslensk stjórnvöld ættu að leggja áherslu á og viðurkenna formlega stuðning við blaðamennsku sem þátt í varnarviðbúnaði landsins og nýta tækifærið til þess að efla þann stuðning verulega.
Vísar hún meðal annars til nýlegs leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Haag þar sem samþykkt hafi verið að stórauka útgjöld til varnarmála og orða Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um að á næsta áratug verði framlag Íslands til varnarmála 1,5 prósent af landsframleiðslu og fari í eflingu innviða sem styðji við áfallaþol, öryggi og varnir.
Fjölmiðlar séu hluti af vörnum gegn „fjölþátta ógnum“ sem meðal annars geti falið í sér óbeinar árásir sem ætlað sé að grafa undan upplýstri og lýðræðislegri umræðu.
„Sterkir fréttamiðlar tryggja aðgengi almennings að traustum og sannreyndum upplýsingum þegar áföll ríða yfir og draga þannig úr óvissu og upplýsingaóreiðu um leið. Vel fjármagnaðir fjölmiðlar geta brugðist fljótt og örugglega við falsfréttum, leiðrétt rangar upplýsingar og komið í veg fyrir að grafið sé undan stöðugleika í samfélaginu,“ segir Sigríður Dögg í grein sinni.
Hún segir Blaðamannafélagið hafa fundið fyrir velvilja og áhuga stjórnvalda á að ráðast í aðgerðir til að efla blaðamennsku og skilning á mikilvægi blaðamennsku í lýðræðissamfélagi.
„Nú er tækifæri fyrir ríkisstjórnina að láta verkin tala og tryggja að hér geti starfað stöndugir fréttamiðlar sem ástunda faglega blaðamennsku sem stuðlar að auknu öryggi, samheldni og trausti í samfélaginu hvað sem á dynur.“