Nýjar tölur sýna 9,8% fjölgun gistinótta á hótelum í maí

Framboð hótelherbergja jókst í öllum landshlutum nema á Austurlandi þar sem það dróst saman um rúm fimm prósent, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Alls var aukningin 1,1 prósent fyrir landið í heild og jókst framboðið mest á Norðurlandi, eða um sex prósent. Minni breytingar voru í öðrum landshlutum.

Mynd: ÓKÁ

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 9,8 prósent í maí 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi.

Fram kemur að alls hafi gistinæturnar verið tæplega 431 þúsund á landsvísu en til samanburðar hafi þær verið rúmlega 392 þúsund á sama tíma árið 2024.

„Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Vesturlandi og Vestfjörðum, eða um 31,6%, en þar að auki var umtalsverð aukning á Suðurnesjum (14,8%). Töluverð aukning var einnig á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fjölgaði um 8,9%. Þá var einnig 7,2% vöxtur á Suðurlandi, 5,9% á Austurlandi og 4,2% á Norðurlandi.“

Alls fjölgaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um rúmlega 17 þúsund, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar, og samanlagt um tæplega 22 þúsund í öðrum landshlutum.

Þá segir að gistinætur erlendra ferðamanna hafi verið tæplega 373 þúsund, eða 87 prósent af gistinóttum hótela. Það hafi verið 9,6 prósenta aukning frá fyrra ári.

Gistinætur Íslendinga á hótelum hafi verið tæplega 58 þúsund, eða 11,4 prósentum meira en í maí árið 2024.

„Meginþorri erlendra ferðamanna var af bandarísku bergi brotinn, eða tæpur þriðjungur, og fjölgaði gistinóttum þeirra um 13,9% í maí. Á fyrstu fimm mánuðum ársins jukust gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum um 3,5%. Gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði hins vegar lítillega á sama tíma eða um 0,6%.“

Fram kemur í tilkynningu Hagstofunnar að unnið sé að endurskoðun á flokkun gagna um gistinætur, en nánari greiningu má sjá í tilkynningu stofnunarinnar.