Þróun efnahagsmála á Íslandi er á réttri leið og í átt að jafnvægi á ný, að því er fram kemur í nýrri úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Á sama tíma og slaki í peningastefnu Seðlabankans hafi aukist og útflutningur eflst hefur þróunin verið hagfelld að mati OECD, sem þó segir áhættuþætti marga.
Stofnunin bendir á að lítið hagkerfi sem byggi á útflutningi sé viðkvæmt fyrir ytri áföllum. Margvíslegar blikur eru sagðar á lofti. Þannig geti ferðaþjónusta á Íslandi verið viðkvæm fyrir áhrifum sem tollar og viðskiptahindranir hafi á efnahag viðskiptaþjóða. Þá gætu hlutir á borð við stórt eldgos eða umfangsmikil tölvuárás sett strik í reikninginn.
„Traustir undirstöðuþættir hafa hjálpað landinu að verða með þeim auðugustu og þar sem jöfnuður er hvað mestur. Ísland þarf hins vegar að endurskoða umgjörð ríkisfjármála, bæta skyldunám, auka raforkuframleiðslu og einfalda regluverk atvinnulífsins til að örva vöxt og viðhalda miklum lífsgæðum,“ segir í samantektarkafla úttektarinnar.
Þar kemur fram að betri stjórn á öflun og ráðstöfun opinbers fjármagns, aðgerðir til að svara þörf vinnumarkaðarins fyrir hæfu starfsfólki, fjárfesting í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og bætt aðlögun innflytjenda muni styðja við áframhaldandi efnahagsvöxt og mikil lífsgæði í landinu.
Til þess að lyfta grunnfærni á ný verður að koma til heildstætt átak til að bæta skyldunám, að mati OECD. Í aðgerðum þar að lútandi er meðal annars talað um endurinnleiðingu staðlaðra prófa, markvissari námskrá, aðgerðir til að auka gæði kennslu og aukin íslenskukennsla fyrir börn innflytjenda.
Þá segir stofnunin að til að tryggja hagkvæm orkuskipti og viðhalda orkuöryggi þurfi að auka bæði raforkuframleiðslu og efla flutningsgetu raforkukerfisins. Það verði gert með því að hraða og einfalda leyfisveitingu fyrir ný orkuverkefni, auk þess að heildsölumarkaður raforku fái að þróast smám saman og innleidd verði verðlagning orku í takti við eftirspurn.
Sendinefnd OECD sem rýnt hefur efnahag Íslands mælist einnig til þess að dregið verði úr stjórnsýslukvöðum og byrði regluverks í viðskiptum bæði við innkomu og brotthvarf af markaði. Þar er horft til beinnar erlendrar fjárfestingar og viðskiptahindrana sem ekki fela í sér tolla.
„Að sömu leikreglur gildi fyrir alla er er lykilatriði til að efla viðskiptalífið og örva framleiðnivöxt.“
Nálgast má úttektir OECD á vef stofnunarinnar.
Sjá einnig sameiginlega tilkynningu ráðuneyta fjármála- og efnahags, atvinnuvega, forsætis, mennta- og barnamála, umhverfis-, orku- og loftslags, auk utanríkisráðuneytis.