Meira þarf til að halda heilsu en að borða eitt epli á dag

Epli eru holl og neysla þeirra getur haft góð áhrif á heilsu, en ein og sér eru þau samt engin töfralausn.

Rauð og græn epli
Epli. Mynd: James Yarema-Unsplash

Epli hafa á stundum verið sögð allra meina bót. Vel þekkt er enska orðatiltækið „an apple a day keeps the doctor away“ og hér á landi þekkist hvort tveggja „epli á dag kemur skapinu í lag“ og „epli á dag kemur heilsunni í lag“.

Fullyrðingar um ágæti epla fyrir heilsuna hafa verið uppspretta þó nokkurra rannsókna í gegn um tíðina. Til að mynda greindi Ríkisútvarpið frá því í desember 2013 að bresk rannsókn sýndi að eplaneysla ynni á móti dauðsföllum af völdum hjarta og æðasjúkdóma.

Þá fjallaði DV um virkni epla og góð áhrif þeirra á heilsuna í stuttri frétt í febrúarbyrjun 2019.

Vegna máltækisins þekkta eru Bretar enn með hugann við eplin, en nú greinir Breska ríkisútvarpið (BBC) frá rannsókn þar sem kafað var í sannleiksgildi þess hvort það geri læknisheimsóknir óþarfar að borða eitt epli á dag.

Stutta svarið er að máltækið stenst ekki skoðun, þrátt fyrir margvíslegan heilsufarsávinning sem epli geti fært fólki, þó ekki væri nema fyrir þá sök eina að oft leitar fólk til læknis þó svo það sé við góða heilsu, til að fá skoðun og fullvissu um að ekkert sé að. Hins vegar var hægt að draga þá ályktun að fólks sem að jafnaði borðar epli lifir heilsusamlegra lífi.

Rannsóknin sem vísað er til í umfjöllun BBC  náði til nærri níu þúsund þátttakenda sem upplýstu um daglegar neysluvenju sínar. Í ljós kom að þeir sem borðuðu epli voru sannarlega ólíklegri til að þurfa að leita til læknis. Niðurstaðan var hins vegar ekki tölfræðilega marktæk samt, því taka þurfti með í reikninginn að fólk sem borðar epli var líklegra til að búa að hærra menntunarstigi og var síður reykingafólk.

„Niðurstaðan,um að ekki séu mikil fylgni milli þess að fólk borði epli á dag og líkanna á að það þurfi að leita til læknis, er af því málið er flókið,“ hefur BBC eftir Matthew Davis, dósents og stundakennara í faraldsfræði við Dartmouth Geisel School of Medicine í New Hampshire í Bandaríkjunum, sem fór fyrir rannsókninni.

„Samkvæmt greiningu okkar, er fólk sem borðar epli heilbrigðara heilt yfir.“

Rannsóknin leiddi hins vegar líka í ljós að fólk sem borðar epli að jafnaði er síður líklegt til þess að nota lyfseðilsskyld lyf. Og sú niðurstaða hélt þó að leiðrétt væri fyrir aðra áhrifaþætti.

Rannsóknin segir því í niðurlagi að enska máltækið ætti kannski fremur að hljóða á þá leið að „epli á dag haldi lyfsalanum fjarri“.

Á eftirfarandi síðum má finna frekari upplýsingar á íslensku um ágæti epla og eplaáts: