Loftgæði á Íslandi hafa batnað með árunum

Almennt séð eru loftgæði á Íslandi meðal þeirra bestu í Evrópu að sögn Umhverfis- og orkustofnunar.

Í heildina hafa loftgæði á Íslandi batnað með árunum, eða í það minnsta haldist tiltölulega óbreytt á langflestum stöðum.  Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri ársskýrslu um loftgæði árið 2023 frá Umhverfis- og orkustofnun. Ársskýrslan er sögð sjöunda samantekt sinnar tegundar á Íslandi.

Fram kemur að styrkur svifryks , köfnunarefnisdíoxíðs, brennisteinsdíoxíðs og brennisteinsvetnis í andrúmslofti hafi verið undir heilsuverndarmörkum í langflestum tilvikum árið 2023.  

„Eini staðurinn þar sem styrkur loftmengunarefnis fór yfir heilsuverndarmörk var Reykjahlíð á Mývatni en þar fór ársmeðaltalsstyrkur H₂S lítillega yfir mörk, annað árið í röð. Uppruna H₂S á Mývatni má rekja til jarðvarmavirkjana í nágrenninu. H₂S mengun hefur tærandi áhrif á rafbúnað en langvarandi áhrif hennar á heilsufar fólks hafa lítið verið rannsökuð.“

Fyrir utan þetta smávægilega frávik við Mývatn voru loftgæði á Íslandi mjög góð árið 2023 að sögn stofnunarinnar. 

Í ársskýrslunni er hægt að skoða allar mælingar loftmengunarefna frá upphafi á Íslandi og loftgæðamælingar settar í samhengi við gildandi reglugerðir og gögn sett fram í formi mynda og taflna. 

Sjá nánar á vef Umhverfis- og orkustofnunar.