Samtrygging og séreign nam 8,9 milljörðum í lok 2024

Lífeyrissparnaður Íslendinga í formi samtryggingar og séreignar lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila nam tæpum 8,9 milljörðum króna við lok ársins 2024 og jókst um þrettán prósent milli ára.

Þetta kemur fram í nýbirtri samantekt Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands úr ársreikningum lífeyrissjóða og sambærilegum gögnum frá vörsluaðilum séreignarsparnaðar.

„Á liðnu ári störfuðu 20 lífeyrissjóður í 25 samtryggingardeildum og af þeim buðu 13 sjóðir upp á séreignarsparnað í 44 deildum,“ segir þar.

Aðrir innlendir vörsluaðilar séreignarsparnaðar eru sagðir fimm talsins og hafa boðið upp á sparnað í 31 séreignardeild. Þá hafi þrír erlendir vörsluaðilar boðið upp á lífeyrisafurðir sem flokkist sem séreignarsparnaður.

Töluleg gögn úr samantektinni má finna á vef Seðlabankans.