Matvælastofnun varar fólk við því að tína og borða krækling í Hvalfirði og öðrum vinsælum stöðum til kræklingatínslu við landið. Stofnunin bendir á í færslu á vef sínum að eiturþörungar hafi ár eftir ár verið viðvarandi í sjó í Hvalfirði yfir sumartímann.
„Maí og júní hafa verið sólríkir og er ástæða til að ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel,“ segir í frétt Matvælastofnunar.
Um leið er áréttað að ekki þurfi að varast krækling (bláskel) sem ræktaður sé hérlendis og sé í boði í verslunum og veitingahúsum. Stofnunin taki reglulega sýni af skelkjöti og sjó til að fylgjast með magni eitraðra þörunga í sjó og hvort skelkjötið innihaldi þörungaeitur. Þá sé ræktun og markaðsetning einnig undir eftirliti Mast og heilbrigðiseftirlits.
Á vef matvælastofnunar getur fólk fylgst með niðurstöðum vöktunar á eiturþörungum í sjó og eins þörungaeitri í skel á ræktunarsvæðum: Þörungaeitur í skelfiski | Matvælastofnun
Í skýringum Matvælastofnunar segir að svifþörungar séu undirstaða fæðukeðju hafsins, en sumar tegundir myndi þörungaeitur sem sé hættulegt mönnum og dýrum.
„Vöxtur og eiturmyndun í þörungum er ekki fyrirsjáanleg, því getur hættan sprottið upp á gróðurtímabili þörunga, frá mars mánuði og fram á vetur. Skelfiskurinn sem étur eiturþörunga safnar í sig eitrinu án þess að það hafi áhrif á hann sjálfan. Eituráhrifanna gætir aftur á móti hjá þeim sem neyta skelfisks sem hefur safnað upp þörungaeitri.“
Frekari upplýsingar um eiturþörunga og þörungaeitur er svo að finna á vef Hafrannsóknastofnunar: Um þörungaeitranir / Hafrannsóknastofnun