Myndasafn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur formlega verið opnað.
Fram kemur í frétt á vef Sambandsins að síðustu vikur hafi verið unnið að því að koma broti af myndasafni Sambandsins inn á gagnagrunn sem vistaður sé hjá fyrirtækinu DataDwell.
Þar er sagt verða einfalt að halda utan um safnið, merkja það með þeim og því sem á myndunum er og setja inn margs konar merkingar, s.s. ártal, tilefni og ótalmargt fleira.
„Nú þegar hafa verið settar inn næstum 2.000 myndir flestar frá síðustu árum en einnig frá sjöunda og áttunda áratugnum,“ segir á vef Sambandsins.
Er það sögð von þeirra sem að Sambandi íslenskra sveitarfélaga standa að ljósmynda- og minningabankinn verði sveitarstjórnarfólki og landsmönnum öllum góð afþreying og jafnframt því að náist með honum að sýna hversu fjölbreytt verkefni Sambandið hefur fengist við í gegnum tíðina.
„Við búum yfir áttræðri sögu og þúsund minningum.“
Fólki er boðið að fletta í gegnum myndirnar og senda Sambandinu ábendingar um það sem betur mætti fara.
„Og biðjum ykkur endilega um að senda okkur ábendingar um nöfn og staði í gegnum myndavefinn sjálfan.“
Slóðin er http://myndasafn.samband.is.