Stöðugur rekstur í krefjandi veðurfari

Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrsta ársfjórðungi nam 12 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri 13,7 milljörðum.

Ljósafossvirkjun, Landsvirkjun, Ljósafossstöð
Ljósafossstöð Mynd/Landsvirkjun

Í nýbirtu þriggja mánaða uppgjöri Landsvirkjunar er talað um „stöðugan rekstur í krefjandi umhverfi“.

„Eftir tímabundinn samdrátt í raforkusölu vegna erfiðrar stöðu í vatnsbúskapnum hefur raforkuvinnsla Landsvirkjunar náð fyrri stöðugleika. Seinni hluta síðasta árs var miðlunarstaða í sögulegu lágmarki, en eftir úrkomusaman vetur á hálendi Íslands er vatnsstaða allra miðlunarlóna fyrirtækisins nú vel yfir sögulegum meðaltölum,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar í tilkynningu til Kauphallar.

Fram kemur að tekjur Landsvirkjunar hafi aukist um 13% frá fyrra ári og numið 162 milljónum Bandaríkjadala, eða um 21,4 milljörðum króna, á fyrsta ársfjórðungi. Þá hafi hagnaður af grunnrekstri fyrirtækisins aukist um 18% á milli ára á fjórðungnum og numið 91 milljón dala, eða rúmlega 12 milljörðum króna.

Punktar úr uppgjörinu:

  • Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrsta ársfjórðungi nam 12 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri 13,7 milljörðum.
  • Fjárhagslegur styrkur fyrirtækisins hefur aldrei verið meiri, eiginfjárhlutfall er 67% og skuldsetning er  1,4× rekstrarhagnaður fyrir afskriftir.
  • Rekstrartekjur hækkuðu á tímabilinu miðað við sama tíma í fyrra, eftir að hafa dregist saman frá metárinu 2023.

Hörður segir í tilkynningunni að eiginfjárhlutfall Landsvirkjunar hafi aldrei verið hærra, eða 67% og því standi Landsvirkjun styrkum fótum í upphafi þess framkvæmdatímabils sem í hönd fari, með byggingu vindorkuversins Vaðölduvers og Hvammsvirkjunar, sem er vatnsaflsvirkjun, auk stækkunar Sigöldustöðvar. „Nettó skuldir lækka áfram og eru nú 1,4-sinnum rekstrarhagnaður fyrir afskriftir,“ segir hann.