Evrópska einkaleyfastofan (EPO) kynnir með stolti nýtt upphaf fyrir verðlaunaafhendingu til handa ungum frumkvöðlum (Young Inventors Prize), sem verður nú frá og með árinu 2025 sjálfstæð verðlaunahátíð. Stofnað var til verðlaunanna árið 2022 en fyrir þann tíma voru þau hluti af Evrópsku nýsköpunarverðlaununum, sem verið hafa hornsteinn nýsköpunarviðurkenninga frá árinu 2006. Frá og með þessu ári verður um tvo sjálfstæða viðburði að ræða sem haldnir verða árlega til skiptis.
Valdefling frumkvöðla morgundagsins
Verðlaunahátíðin the Young Inventors Prize er bæði ætluð einstaklingum og teymum fólks á aldrinum 30 ára og yngri sem þróað hafa byltingarkenndar nýjungar sem taka mið af sjálfbærum þróunarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í dag verða tíu verðlaunahafar kynntir til leiks sem „frumkvöðlar morgundagsins“, sem valdir hafa verið úr hópi yfir 450 umsækjenda sem hlotið hafa viðurkenningu fyrir framlag sitt til að takast á við brýnar alþjóðlegar áskoranir.
Athöfnin 2025; Hátíð nýsköpunar
Á verðlaunahátíðinni í ár munu vinningshafarnir koma saman í Hörpu í Reykjavík þann 18. júní, þar sem þremur verkefnum verða veitt sérstök verðlaun:
- World Builders: Viðurkenning til frumkvöðla, sem leggja til lausnir sem haft geta mótandi áhrif á veröldina og vinna að sjálfbærri framtíð með því að tryggja aðgang að nauðsynlegum auðlindum eins og vatni, orku og sjálfbærum innviðum. Starf þeirra stuðlar að virku hringrásarhagkerfi sem knýr áfram velmegun og dregur úr neikvæðum umhverfisáhrifum (sbr. sjálfbær þróunarmarkmið SÞ 1, 2, 3, 4, 5, 8, 10, 16, 17).
- Samfélagslæknar / Community Healers: Viðurkenning til einstaklinga eða teyma sem hafa lausnir fyrir fæðuöryggi, menntun, heilsugæslur og sanngjörn vinnuskilyrði. Starf þeirra og lausnir stuðla að jöfnum tækifærum og veita viðspyrnu gegn mismunun (sbr. sjálfbær þróunarmarkmið SÞ 1, 2, 3, 4, 5, 8, 10, 16, 17).
- Varðmenn náttúrunnar / Nature Guardians: Viðurkenningin er tileinkuð verkefnum sem vernda vistkerfi og líffræðilegan fjölbreytileika, taka á loftslagsbreytingum, náttúruleg skilyrði sjávar og verndun dýralífs. Verkefnin miða að því að koma í veg fyrir umhverfisspjöll og endurheimta náttúrulegt jafnvægi (sbr. sjálfbær þróunarmarkmið SÞ 13, 14, 15, 17).
Verðlaun og viðurkenningar
Hver keppandi í úrslitum fær 5.000 evrur að launum, en þrír sérverðlaunahafar fá 15.000 evrur að auki. Vinningshafinn í vali fólksins, valinn með almennri atkvæðagreiðslu á netinu, fær 5.000 evrur aukalega. Athöfninni verður streymt beint frá Íslandi þann 18. júní 2025, sem gerir alþjóðlegum áhorfendum kleift að taka þátt og fagna með ungu frumkvöðlunum.
Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar um verðlaunahátíðina Young Inventors 2025 má nálgast HÉR er nær dregur hátíðardeginum.