Business Europe undirstrikar mikilvægi EES EFTA-ríkjanna

SI vekja athygli á nýrri skýrslu BusinessEurope þar sem fjallað er um áhrif tollahækkana í Bandaríkjunum.

Cargo Vessel in Hamburg, Germany.
Flutningaskip í Hamborg í Þýskalandi. Mynd: Wolfgang Weiser/Unsplash

Í nýútkominni skýrslu Business Europe er áhersla lögð á að efla þurfi og tryggja samskipti á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Í umfjöllun á vef Samtaka iðnaðarins (SI) kemur fram að þau séu aðili að Business Europe, sem séu leiðandi hagsmunasamtök evrópskra atvinnurekenda.

„Mikil vinna hefur verið lögð í kortlagningu á hagsmunum evrópskra fyrirtækja og áhrifa vegna tollahækkana í Bandaríkjunum,“ segir á vef SI og bent áð að Business Europe hafi nýleg gefið út skýrsluna: EU-U.S. Relations – Buisness – Views on the Way Forward. Skýrlan fjalli um afstöðu samtakanna til viðskiptasambands Evrópusambandins og Bandaríkjanna, áherslur og væntingar til framtíðar.

Fram kemur að helstu áhersluatriði skýrslunnar séu þessi:

  • Að efla þurfi og tryggja samskipti á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna og styðja þannig við vöxt beggja megin við Atlantshafið.
  • Að sporna þurfi gegn viðskiptahindrunum og lækka kostnað vegna viðskipta yfir Atlantshafið.
  • Að lagst sé gegn því að settir verði viðbótartollar á vörur, en slík þróun skaði fyrirtæki og komi ekki síst niður á neytendum.
  • Að ákall sé um aukna samvinnu á sviði tæknilausna og að stofnaður verði vettvangur fyrir samstarf þar sem m.a. fari fram sameiginlegt mat á regluverki milli svæða.

„Samtök iðnaðarins taka undir með norsku systursamtökum sínum, NHO, að afar ánægjulegt sé að í skýrslunni sé kveðið á um að EES EFTA-ríkin séu hluti af innri markaði ESB og virðiskeðjunni. Einnig að mikilvægt sé að Evrópusambandið og Bandaríkin líti til þessa til að tryggja einsleitni á innri markaðinum,“ segir í frétt SI.

Vitnað er til skýrslunnar þar sem segir: „When considering solutions between the EU and the U.S., both parties should take into account the close integration of some neighbouring countries in transatlantic value chains. This is particularly important to ensure the integrity of the internal market, including in the EEA EFTA States.“

Skýrslu Business Europe má nálgast HÉR.