Alvotech semur við DNB Carnegie um viðskiptavakt í Stokkhólmi

Gengið hefur verið frá samningi um viðskiptavakt DNB Carnegie Investment Bank AB með bréf Alvogen á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi.

Mynd/Alvotech

Alvotech hefur gengið frá samningi við DNB Carnegie Investment Bank AB um viðskiptavakt með bréf félagsins á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi. Frá þessu er greint í kauphallartilkynningu. Sænsk heimildarskírteini (SDR), sem eru ígildi hlutabréfa í Alvotech, voru tekin til viðskipta á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi í dag, en félagið er skráð undir auðkenninu „ALVO SDB“.

Skráningu Alvotech í kauphöllina í Stokkhólmi er ætlað að auka sýnileika félagsins hjá markaðsaðilum í Skandinavíu og Evrópu, auka viðskipti með hluti í félaginu og breikka hluthafahópinn. Bréf Alvotech eru nú skráð samhliða á þremur aðalmörkuðum, Nasdaq í Bandaríkjunum, Nasdaq á Íslandi og Nasdaq í Stokkhólmi.

Fram kemur í tilkynningunni um viðskiptavaktina að samkvæmt samningnum gefi DNB Carnegie daglega út virk kaup og sölutilboð á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi, fyrir heimildarskírteinin í Alvotech, í samræmi við reglur kauphallarinnar. „Markmið þjónustunnar er að tryggja meiri veltu og draga úr bili milli kaup- og sölutilboða,“ segir í tilkynningunni en þjónusta DNB Carnegie hefjist 20. maí.

Alvotech er líftæknifyrirtæki, stofnað af Róberti Wessman, sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja og stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja.