Fossar fjárfestingarbanki hf. gera sátt við fjármálaeftirlitið

Heildarendurskoðun og umbætur eru sagðar langt komnar.

Mynd/Fossar fjárfestingarbanki

Í kjölfar athugunar fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands í maí 2023 hafa Fossar fjárfestingarbanki gert sátt við fjármálaeftirlitið. Í tilkynningu til Kauphallar kemur fram að athugun eftirlitsins hafi snúið að aðgerðum bankans gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. „Sáttin felur í sér að bankinn fellst á að greiða sekt að fjárhæð 22 milljónir króna“ segir þar.

Fram kemur að athugun fjármálaeftirlitsins árið 2023 hafi leitt í ljós annmarka á framkvæmd bankans að því er varðar áhættumat á starfsemi vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka og áhættumat samningssambanda og einstakra viðskipta. Einnig á framkvæmd áreiðanleikakannanna og reglubundins eftirlits.

Með sáttinni viðurkennir bankinn annmarka á framkvæmd þeirra atriða sem lýst er. „Athugasemdum fjármálaeftirlitsins var tekið alvarlega og ráðist í heildarendurskoðun á framkvæmd málaflokksins til samræmis við niðurstöður eftirlitsins.“

Fossar benda á að markvisst hafi verið unnið að því að efla fyrirkomulag varna gegn peningaþvætti í allri starfsemi bankans og er vinna við úrbætur sögð langt á veg komin.

„Bankinn hefur m.a. á skipulegan hátt styrkt reglubundið eftirlit, þá helst með eflingu færslueftirlits og umgjörð eftirlits með upplýsingum um viðskiptavini. Aðferðafræði vegna áhættumats á starfsemi og viðskiptasambanda hafa verið tekin til heildarendurskoðunar. Stefnur, reglur og verklagsreglur hafa verið endurskoðaðar og eftir atvikum settar nýjar, en einnig hefur verið fjárfest í nýjum upplýsingatæknikerfum.“