Rafræn ferðaleyfi þarf til að heimsækja Bretland

Fólk á leið til Bretlands þarf nú að huga að því að öll leyfi séu í lagi áður en lagt er af stað.

Flugvélar á Heathrow flugvelli. Mynd: Duc Van/Unsplash

Í aprílbyrjun varð sú breyting á högum íslenskra ferðalanga sem vilja sækja Bretland heim að fyrir ferðina þurfa þeir að hafa sótt um svokallað „rafrænt ferðaleyfi“ (ETA, Electronic Travel Authorisation). Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðs Íslands. 

ETA leyfið gildir í tvö ár frá útgáfudegi, eða þangað til vegabréf rennur úr gildi sé það skemmri tími. Leyfið er tengt vegabréfinu og þarf því að sækja um nýtt ETA endurnýji ferðalangur vegabréfið sitt.

Fyrir styttri heimsóknir 

  • Íslenskum og öðrum erlendum ríkisborgurum, sem ekki hafa dvalarleyfi í Bretlandi, verður skylt að hafa fengið ETA áður en þeir ferðast til Bretlands.
  • Þetta á bæði við um þá sem ferðast til Bretlands í einkaerindum og styttri vinnuheimsóknum.
  • Ekki þarf ETA fyrir millilendingar að því gefnu að ekki þurfi að fara í gegnum vegabréfaeftirlit. Hægt er að kanna hjá flugfélagi ef óvissa ríkir um það. Þurfi ferðalangur að fara í gegnum vegabréfaeftirlit, jafnvel bara til að sækja farangur og innrita sig inn aftur, þarf ETA.  

„ETA kostar GBP 16 og gildir í tvö ár frá útgáfudegi eða þar til vegabréf viðkomandi rennur út ef það er innan þessara tveggja ára. Mikilvægt er að kanna að sótt sé um á réttri síðu eða í gegnum rétt app, mikilvæg vísbending þess efnis er að skoða verðið, það er aldrei hærra en 16 pund á mann,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að einfaldast sé að nota smáforrit (app) til að sækja um ferðaleyfið, en það er fáanlegt fyrir bæði iPhone og Android síma. Eins segir að hægt sér að sækja um á vefsíðu breskra stjórnvalda, GOV.UK. 

Ferðalöngum er jafnframt bent á að ef ætlunin sé að dvelja lengur en í sex mánuði í Bretlandi, þurfi að sækja um viðeigandi dvalarleyfi. ETA nægir ekki í slíkum tilvikum. Þá kemur fram að fólk sem nú þegar hefur dvalarleyfi í Bretlandi þurfi ekki ETA leyfi til að ferðast þangað.

Hafa þarf varann á

Fólk þarf aðeins að gæta sín í ferlinu að vera örugglega að nota réttar leiðir því varað er við því að þó nokkuð sé um að fólk lendi inni á svikasíðum og smáforritum. „Ef grunur leikur á um slíkt má alltaf sannreyna hvort ETA sé gilt eða ekki í gegnum spjallmenni breskra stjórnvalda á gov.uk síðunni,“ segir í fréttinni. 

Bresk stjórnvöld hvetja fólk jafnframt til að tilkynna um svikasíður og -forrit í gegnum gov.uk vefinn.

Frekari upplýsingar um ETA má finna á GOV.UK.