Ítölsku hóteli var frjálst að bjóða ekki kranavatn

Hér á landi bjóða veitingastaðir gestum sínum almennt upp á kranavatn þó svo þeim beri ekki lagaskylda til að gera það.

Vatnskanna og borðubúnaður á veitingahúsi.
Vatnskanna og borðubúnaður á veitingahúsi. Mynd/Franco Debartolo á Unsplash

Hæstiréttur Ítalíu segir að fimm stjörnu hótel í Dolomítafjöllum í norðaustur Ítalíu hafi mátt neita ferðamanni um kranavatn.

Frá því er greint á fréttavef Breska ríkisútvarpsins (BBC) að kona frá Róm hafi án árangur haldið því fram fyrir dómi að vatn væri „náttúruauðlind og almenn mannréttindi“.

Flaskan kostaði þúsundkall

Henni hafði verið neitað um kranavatn á veitingastað fimm stjörnu hóteli í Corvara á Ítalíu og þjónn á staðnum ekki gefið henni kost um annað en ölkelduvatn á flösku sem kostað hafi sjö evrur, eða sem svarar um eitt þúsund krónum.

Dómurinn er jafnframt sagður hafa hafnað kröfu hennar um bætur að upphæð 2.700 evrur, jafngildi tæplega 390 þúsund króna, vegna andlegrar vanlíðanar og fjárhagslegs tjóns.

Haft er eftir Silvio Belardi, lögmanni hótelsins, í viðtali við dagblaðið Corriere Alto Adige, að dómstóllinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að „engin skylda sé til að útvega kranavatn“.

Jafn sjálfsagt og lak á rúmi

„Lögmaðurinn sagði síðar við BBC að málið hefði fyrst verið fellt niður af dómi í Róm, síðan af áfrýjunardómi og nú af æðsta dómstigi, Corte di Cassazione, þar sem dæmt hefði verið hótelinu í vil,“ segir í frétt BBC.

Konan hafi haldið því fram að brotið hefði verið á neytendarétti hennar með því að henni hafi verið neitað um kranavatn og taldi að það væri hluti af grunnþjónustu hótelsins að bjóða upp á slíkt, rétt eins og búast mæti við því að „lak væri á rúmum“ og „sápa á baðherbergi“.

Lögmaðurinn hafi hins vegar vísað til þess að stefna fyrirtækisins væri, líkt og á mörgum gæðastöðum, að hafa eingöngu á borðum innsiglað flöskuvatn.

Veitingastöðum í sjálfsvald sett

Bótakröfu konunnar hafi verið hafnað vegna skorts á sönnunargögnum.

Þá komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að ítölsk lög og reglugerðir kvæðu ekki á um skyldu staða til að veita gestum kranavatn. Ákvörðun um að bjóða kranavatn væri á höndum hvers staðar fyrir sig.

Lögmaður hótelsins segir jafnframt hafa verið bent á að vildi einhver vatn úr krana mætti auðveldlega nálgast það á hótelinu, en ekki á veitingastaðnum.

Ekki heldur skylda á Íslandi

BBC bendir á að á Englandi og í Wales séu veitingastaðir og staðir með áfengisleyfi lögum samkvæmt skyldaðir til að bjóða upp á ókeypis drykkjarvatn væri þess óskað.

Lausleg könnun bendir jafnframt til þess að íslensk löggjöf sé líkari þeirri ítölsku í þessu tilliti og að hér beri veitingastaðir ekki heldur lagaskyldu til að bjóða upp á ókeypis kranavatn.

Það er hins vegar almenn framkvæmd og flestir staðir gera það án endurgjalds.