ESB rannsakar súkkulaði- og sælgætisframleiðanda

Sérstaklega er verið að kanna hvort markaðnum hafi verið skipt upp með ólögmætum hætti, meðal annars með takmörkunum á frjálsum viðskiptum milli aðildarríkja á innri markaði Evrópusambandsins og hindrunum á kaupum yfir landamæri.

Súkkulaði
Súkkulaði. Mynd/Tetiana Bykovets á Unsplash

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ráðist í fyrirvaralausar samkeppniseftirlitsaðgerðir í tveimur aðildarríkjum sambandsins hjá fyrirtæki sem starfar á markaði fyrir súkkulaði- og sælgætisframleiðslu.

Í tilkynningu Framkvæmdastjórnarinnar kemur fram að aðgerðin sé sprottin af áhyggjum af því að viðkomandi fyrirtæki kunni að hafa brotið gegn samkeppnisreglum ESB, sem meðal annars banni samráð milli fyrirtækja og aðrar samkeppnishamlandi viðskiptahætti, sem og misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

„Sérstaklega er verið að kanna hvort markaðnum hafi verið skipt upp með ólögmætum hætti, meðal annars með takmörkunum á frjálsum viðskiptum milli aðildarríkja á innri markaði Evrópusambandsins og hindrunum á kaupum yfir landamæri.“

Í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar segir að fyrirvaralausar vettvangsathuganir séu hluti af frumrannsókn í málum þar sem grunur leiki á um samkeppnishamlandi háttsemi.

Áréttað er að þó að ráðist sé í rannsókn feli það ekki í sér að lög hafi verið brotin, eða að hægt sé að gefa sér niðurstöðu rannsóknar fyrirfram.

„Framkvæmdastjórnin virðir rétt fyrirtækja til varna, þar á meðal rétt þeirra til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í samkeppnismálum.“

Lengd slíkra rannsókn ráðist svo af flækjustigi mála, hversu samvinnuþýð fyrirtæki séu við rannsóknina og hvernig þau nýti rétt sinn til varna. Rannsóknum séu ekki sett tímamörk í lögum.

Þá er bent á að samkeppniseftirlit ESB starfræki tilkynningakerfi þar sem einstaklingar og fyrirtæki geti nafnlaust sent ábendingar um mögulega samkeppnishamlandi háttsemi.

„Kerfið tryggir vernd uppljóstrara með dulkóðuðu samskiptakerfi sem gerir tvíhliða samskipti möguleg.“

Ábendingakerfið er að finna á vef Framkvæmdastjórnarinnar.