Ný rannsókn sýnir að gæði sáðfrumna eru mest yfir sumarmánuðina og minnst á veturna.
Fréttavefur Breska ríkisútvarpsins (BBC) fjallar um rannsóknina, en í henni rannsökuðu vísindamenn frá Bretlandi, Kanada og Danmörku sæði úr 15.581 karli á aldrinum 18 til 45 ára í Danmörku og Flórída í Bandaríkjunum.
Niðurstöðurnar eru sagðar leiða í ljós að hreyfanleiki sáðfrumna, eða sundfimi þeirra, hafi gegnumsneitt verið mestur í júní og júlí á báðum stöðum.
„Skilningur á þessu árstíðabundna mynstri gæti bætt frjósemismeðferðir með vali á besta tíma til meðferðar og frjósemisprófa,“ segir í umfjöllun BBC.

Rannsóknin, sem birt var í tímaritinu Reproductive Biology and Endocrinology, er sögð benda til að hreyfanleiki sáðfrumna haldist svipaður þvert á ólíkt loftslag, en breytist hins vegar eftir árstíðum.
„Lægstu gildin mældust í desember og janúar, þrátt fyrir að í Flórída sé hlýtt árið um kring.“
Ekki var hins vegar að merkja árstíðabundna breytingu á heildarmagni sáðfrumna eða á rúmmáli gefinna sæðissýna, sama á hvaða árstíma var mælt.
„Þetta þýðir að þó svo að geta sáðfrumna til að hreyfa sig breytist eftir árstíðum, hefur árstíminn ekki áhrif á hversu margar sáðfrumur líkaminn framleiðir.“
Þannig eru niðurstöðurnar sagðar benda til þess að árstíðamynstur geti haft meiri áhrif á frjósemi karla en hitastigið eitt og sér.
Vísað er til þess að hitastig í pungi karla þar sem sáðfrumur eru geymdar þurfi að jafnaði að vera tveimur til fjórum gráðum lægra en meðal líkamshiti, sem er um 37 gráður.
Hærra eða lægra hitastig geti dregið úr hreyfanleika sáðfrumna og þar með haft áhrif á frjósemi.
Haft er eftir prófessor Allan Pacey frá Háskólanum í Manchester, einum höfunda rannsóknarinnar, að komið hafi á óvart hversu mikil líkindi voru meðal sýnanna í gjörólíku loftslagi.
„Jafnvel í Flórída, þar sem hitinn helst mikill, náði hreyfanleikinn hámarki á sumrin og lægð á veturna, sem bendir til þess að umhverfishitinn einn og sér útskýri ekki þessar breytingar,“ segir hann við BBC.
Rannsóknin undirstriki mikilvægi þess að taka árstíðasveiflur með í reikninginn þegar gæði sæðis séu metin.
Hún sýni einnig að árstíðabundnar sveiflur í hreyfanleika sáðfrumna eigi sér stað jafnvel í hlýju loftslagi.
„Þessar niðurstöður dýpka skilning okkar á frjósemi karla og gætu hjálpað til við að bæta árangur frjósemismeðferða,“ bætir prófessorinn við.