Fjárfestingarbanki Evrópu (EIB) veitir lúxemborgska gervihnattatengifyrirtækinu OQ Technology nærri 3,2 milljarða króna (25 milljóna evra) áhættulán.
Í sameiginlegri tilkynningu EIB og OQ Technology kemur fram að fjármögnun lánsins njóti stuðnings InvestEU fjárfestingaráætlunar Evrópusambandsins (ESB). Það renni til áframhaldandi rannsókna og þróunar á lágbrautargervihnattafjarskiptatækni félagsins (LEO), sem þróuð sé í samræmi við alþjóðlega staðla fyrir farsímasamskipti.
„OQ Technology er að koma á fót eigin gervihnattasamstæðu sem mun bjóða upp á hagkvæmar og áreiðanlegar gervihnattatengingar fyrir Evrópu og þjónustuskert svæði um allan heim,“ segir í tilkynningunni.
Fram kemur að árið 2019 hafi OQ Technology verið fyrst gervihnattafyrirtækja til að sýna fram beina hlutanetstenginu (IoT, eða Internet of Things) úr geimnum. Á síðasta ári hafi það líka verið fyrst evrópskra fyrirtækja til að senda neyðarskilaboð beint í óbreytta snjallsíma um gervihnött.

OQ Technology stefnir á að veita 5G‑þjónustu fyrir IoT‑tæki og óbreytta snjallsíma (á borð við iPhone, Samsung, eða Google Pixel) beint um eigin LEO gervihnattasamstæðu.
Lausnin er sögð miða að dreifbýli og afskekktum svæðum þar sem hefðbundnar tengingar eru ekki til staðar.
Þá komi þessar nýju gagnatengingar fyrir snjalltæki til með að veita hefðbundum fjarskiptanetum stuðning og tryggi fjarskipti komi til truflana á jörðu niðri, svo sem vegna náttúruhamfara eða beinna árása.
Fjármögnun EIB er sögð gera OQ Technology kleift að slá í klárinn hvað varðar rannsóknar‑ og þróunarvinnu fyrirtækisins og hraða innleiðingu á gervihnattatengingunum þess.