Framkvæmdastjórnin Evrópusambandsins (ESB) hefur samþykkt aðra umferð SAFE-varnarstyrkja fyrir átta aðildarríki sambandsins.
SAFE-áætlunin, sem stendur fyrir Security Action for Europe, var samþykkt í lok maí í fyrra og er hluti af „Readiness 2030“ varnaráætlun sambandsins sem ætlað er að búa aðildarríkjunum fjárhagslega hvata til að efla varnnir sína.
Samþykktin nú er sögð marka mikilvægt skref í átt að auknu öryggi Evrópusambandsins, að því er fram kemur í tilkynningu.
„Framkvæmdastjórnin hefur lagt fyrir ráðherraráðið tillögu um að veita fjárhagsaðstoð til Eistlands, Grikklands, Ítalíu, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu og Finnlands,“ segir þar.
Ákvörðunin er sögð byggja á ítarlegri úttekt á áætlunum ríkjanna um fjárfestingar í varnarmálum innan ramma SAFE.
„Með þessu er opað á fyrstu röð lána með lágum kostnaði og löngum lánstíma, sem gera munu þessum ríkjum kleift að efla hernaðarviðbúnað sinn hratt og fjárfesta í nauðsynlegum, nútímalegum varnarbúnaði.“
Að sama skapi er áætlunin sögð styrkja tengingu Úkraínu við öryggiskerfi ESB, þannig að stuðningur Evrópu við landið verði bæði sveigjanlegur og sjálfbær.
Fram kemur að bráðabirgðafjárhæðir fyrir hvert ríki hafi verið ákveðnar í september síðastliðnum.
„Þessi hópur átta ríkja á rétt á um 74 milljörðum evra þegar lánasamningar verða undirritaðir. Fjármunirnir munu styrkja mikilvæga varnarhæfni þar sem þörfin er mest.“
Í krónum talið nemur fjárhæðin sem ríkjahópurinn á rétt á um 10.749 milljörðum íslenskra króna.
Gert ráð fyrir að fyrstu greiðslur vegna áætlunarinnar berist í mars 2026.
Frekari upplýsingar er að finna í Hvítbók um varnarviðbúnað ESB til 2030.