Sýni sem safnað er með drónum úr útblæstri hvala veita innsýn í heilsufar villtra hnúfubaka og fleiri hvalategunda.
Í umfjöllun Breska ríkisútvarpsins BBC er vitnað til rannsóknar sem nýverið var birt í BMC Veterinary Research og fór meðal annars fram á Íslandi, við norðanverðan Noreg og við Grænhöfðaeyjar. Náttúruvísindamenn flugu flugu drónum, sem búnir voru sérstökum búnaði, í gegnum útblástursúða hvala þegar þeir komu úr kafi til að anda.
Fram kemur að meðal annars hafi verið greindur bráðsmitandi vírus sem eigi þátt í fjöldastrandi hvala og höfrunga víða um heim.
BBC hefur eftir Terry Dawson, prófessor við King’s College í Lundúnum, að þessi aðferðafræði við sýnatöku úr blæstri hvala hafi mikið að segja hvað heilsu og velferð hvala varði.
„Þetta gerir okkur kleift að fylgjast með sýklum í lifandi hvölum án þess að valda þeim streitu eða skaða og veitir mikilvægar upplýsingar um sjúkdóma í örum visbreytingum Norðurslóða,“ segir hann.
Sýnatakan fór fram með því að drónar með áföstum dauðhreinsuðum petrískálum fönguðu úðadropa úr útblæstri hnúfubaka, langreyða og búrhvala, auk þess sem bátar voru notaðir til að ná húðsýnum af hvölunum.
„Staðfest var í fyrsta sinn að hvalavírus, sem getur reynst þeim banvænn, þekktur sem cetacean morbillivirus, er í umferð norðan heimskautsbaugs.“
Fram kemur að vírusinn, sem valdið getur alvarlegum veikindum og fjöldadauða, sé mjög smitandi og dreifist auðveldlega meðal höfrunga, hvala og smáhvala.
Sömuleiðis geti hann smitast tegunda og úthafa á milli og ógnað með því velferð sjávarspendýra.
Vísindamennirnir sem að rannsókninni standa eru sagðir vona að þessi tímamót hjálpi til við snemmgreiningu ógna sem stafi að lífi í höfunum, áður en þær nái að dreifast.
„Í framhaldinu ríður á að halda áfram að nota þessar aðferðir til langtímaeftirlits, svo við öðlumst skiling á samspili heilsufarsþátta sem móta munu heilsu hvala á komandi árum,“ segir Helena Costa við Nord-háskóla í Noregi við BBC.
Þá segir að rannsóknin hafi verið unnin í samstarfi King’s College London, The Royal (Dick) School of Veterinary Studies í Bretlandi og Nord-háskóla í Noregi.