Matvælastofnun (Mast) hefur lokið úrbótum vegna þriggja af fimm athugsemdum ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, sem út af stóðu eftir fyrri úttekt stofnunarinnar.
Á vef Mast kemur fram að 13. til 16. október síðastliðinn hafi komið til Íslands tveir úttektaraðilar á vegum ESA, með það fyrir augum að fylgja eftir úttekt vegna verndar dýra í sláturhúsum sem upphaflega hafi verið frá 2021.
„Farið var í fjögur sláturhús mismunandi tegunda og einnig á tvær umdæmisskrifsstofur stofnunarinnar,“ segir þar.
Í heimsókninni nú var fylgt eftir fimm athugasemdum sem stóðu útaf eftir fyrri úttekt.
„Niðurstaðan eftir ESA eftirfylgni-úttektina var sú að þremur var lokað eftir úrbætur.“
Fram kemur að eins athugasemd sé „enn í framþróun“ en hún tengist áhættumati á sláturhúsum. Þá hafi ein fékk einkunnina „úrbóta er enn þörf“, en hún tengist þjálfunaráætlun Mast.
„Stofnunin hyggst bæta úr síðastnefndu athugasemdinni innan 6 mánaða en þróun á áhættumati sláturhúsa er áætlað að klárist í lok næsta árs.“