ESB sektar tískuvörumerki um rúma 22 milljarða króna

Upphaflegar sektarfjárhæðir voru lækkaðar nokkuð í ljósi samstarfsvilja fyrirtækjanna.

Vörumerki. Samsett mynd.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sektaði tískuvörumerkin Gucci, Chloé og Loewe um meira en 157 milljónir evra vegna samráðs um endursöluverð. Upphæðin svarar til rúmlega 22,2 milljarða íslenskra króna.

„Rannsókn framkvæmdastjórnarinnar leiddi í ljós að fyrirtækin þrjú höfðu takmarkað getu sjálfstæðra endurseljenda sem þau vinna með til að ákveða sín eigin smásöluverð, bæði á netinu og í verslunum, fyrir vörur hannaðar og seldar undir vörumerkjum Gucci, Chloé og Loewe,“ segir í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar.

Slík samkeppnishamlandi hegðun er sögð stuðla að hærra vöruverði og draga úr vöruúrvali fyrir neytendur.

Upphaflegar sektarfjárhæðir voru lækkaðar nokkuð í ljósi samstarfsvilja fyrirtækjanna. Sekt Gucci var lækkuð um 50 prósent, í tæpar 119,7 milljónir evra, sekt Chloé um 15 prósent, í tæpar 19,7 milljónir evra, og sekt Loewe um 50 prósent, í rétt rúmar 18 milljónir evra.

Fram kemur að Gucci, Chloé og Loewe séu tískufyrirtæki með höfuðstöðvar í Ítalíu, Frakklandi og Spáni. Þau starfi öll við hönnun, framleiðslu og dreifingu á hágæða tískuvörum, þar á meðal fatnaði, leðurvörum og ýmsum fylgihlutum.

Brot fyrirtækjanna eru sögð hafa náð yfir allt Evrópska efnahagssvæðið (EES).

Sektir sem lagðar voru á fyrirtækin eru sagðar ákvarðaðar samkvæmt leiðbeiningum framkvæmdastjórnarinnar frá 2006 um sektarákvarðanir.

„Við ákvörðun sektanna tók framkvæmdastjórnin tillit til ýmissa þátta, þar á meðal alvarleika og lengdar brotanna, landfræðilegs umfangs þeirra, sem og verðmæti beinnar og óbeinnar sölu viðkomandi vara sem hvert fyrirtæki hafði innan EES á brotatímabilinu.“

Öll fyrirtækin viðurkenndu brot sín og veittu liðsinni við rannsókn evrópsku samkeppnisyfirvaldanna.