Atvinnuleysi á evrusvæðinu 6,3% og í ESB 5,9%

Milli ára hefur dregið líttillega úr atvinnuleysi á evrusvæðinu en aukist aðeins í heildina í Evrópusambandinu.

Mynd/samsett

Í ágúst 2025 var árstíðaleiðrétt atvinnuleysi á evrusvæðinu 6,3 prósent, sem er aukning um 0,1 prósentustig frá fyrra mánuði. Í nýbirtum tölum evrópsku hagstofunnar, Eurostat, kemur fram að atvinnuleysi í Evrópusambandinu (ESB) hafi mælst 5,9 prósent í ágúst 2025, staðið í stað milli mánaða og haldist stöðug frá fyrra ári.

„Eurostat áætlar að 13,089 milljónir einstaklinga í ESB hafi verið atvinnulausir í ágúst 2025, þar af 10,842 milljónir á evrusvæðinu,“ segir í samantekt á vef stofnunarinnar.

Þá kemur fram að borið saman við fyrri mánuð hafi atvinnuleysi aukist um 39 þúsund innan sambandsins og um 11 þúsund á evrusvæðinu. Milli ára jókst atvinnuleysi um 85 þúsund í ESB en dróst saman um 15 þúsund á evrusvæðinu.

Atvinnuleysi ungs fólks

Fram kemur að í nýliðnum ágústmánuði hafi 2,8 milljónir ungs fólks (undir 25 ára) verið atvinnulausar í ESB, þar af 2,2 milljónir á evrusvæðinu. Innan ESB var atvinnuleysi ungs fólks 14,6 prósent í mánuðinum, sem sagt er aukning frá 14,4 prósentum í júlí 2025. Á evrusvæðinu mældist atvinnuleysi ungs fólks 14,0 prósent, óbreytt frá fyrri mánuði.

„Í samanburði við júlí 2025 jókst atvinnuleysi ungs fólks um 20 þúsund í ESB en minnkaði um 4 þúsund á evrusvæðinu.“

Milli ára hafi hins vegar dregið úr atvinnuleysi ungs fólks bæði innan ESB og á evruvæðinu, um 147 þúsund í ESB og um 156 þúsund á evrusvæðinu.

Atvinnuleysi eftir kyni

„Í ágúst 2025 var atvinnuleysi kvenna í ESB 6,0 prósent og atvinnuleysi karla 5,8 prósent, bæði óbreytt frá fyrri mánuði. Á evrusvæðinu var atvinnuleysi kvenna 6,4 prósent og karla 6,1 prósent, einnig óbreytt frá júlí 2025.“

Jafnframt kemur fram að gögn úr vinnumarkaðskönnun ESB fyrir þriðja ársfjórðung 2025 verði birt 12. desember 2025.