Fósturvísar í fyrsta sinn úr húðfrumum manna

Aðferð sem beitt var til að búa til fósturvísa úr húðfrumum svipar til þeirrar sem notuð var til að klóna kindina Dollý árið 1996.

Tölvugerð mynd af frjóvgun eggs á rannsóknarstofu.
Tölvugerð mynd af frjóvgun eggs á rannsóknarstofu. Mynd/Copilot

Í Bandaríkjunum hefur í fyrsta sinn tekist að búa til frumstig fósturvísa með því að umbreyta erfðaefni úr húðfrumum og frjóvga með sæði.

Í umfjöllun á fréttavef Breska ríkisútvarpsins, BBC, segir að um sé að ræða byltingarkennda tækni sem gæti, þegar fram í sækir, haft í för með sér nýja möguleika fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi, hvort sem hún stafar af aldri, sjúkdómum eða öðrum ástæðum.

„Tæknin gæti jafnvel gert samkynja pörum kleift að eignast barn sem yrði erfðafræðilega skylt báðum foreldrum,“ segir í umfjölluninni.

Svipar til klónunar Dollýar

Um leið er sleginn sá varnagli að þó að með rannsóknunum vestra hafi verið stigið stórt skref í frjósemisrannsóknum sé langt í að tæknin verði notuð á læknastöð, áratug geti tekið að fínstilla aðferðina.

Aðferðinni er sagt svipa til þeirrar sem notuð var til að klóna kindina Dollý árið 1996.

BBC vitnar til greinar sem fyrst var birt í vísindaritinu Nature Communications. Þar er lýst hvernig rannsóknarteymi við Oregon Health and Science háskólann hafi tekið kjarna úr húðfrumu, sem innihaldi allt erfðamengi mannsins, og fært yfir í egg sem hafði verið hreinsað af eigin erfðaefni.

Áttatíu og tvö egg frjóvguð

Eggið hafi hins vegar ekki strax verið hægt að frjóvga með sæði, því það hafi á því stigi innihaldið alla litninga mannsins, en ekki bara helming þeirra.

„Fólk fær 23 litninga frá hvoru foreldri sem samtals verða 46, en þeir eru allir þegar til staðar í egginu,“ segir í umfjölluninni.

Næsta skref hafi verið að fá eggið til að losa sig við helming erfðaefnisins, með ferli sem vísindamennirnir eru sagðir kalla „mitomeiósu“. Orðið hafi þeir búið til úr frumuskiptaheitunum mítósu og meiósu.

Fram kemur að búin hafi verið til 82 virk egg sem svo hafi verið frjóvguð með sæði. Nokkur eggjanna hafi svo þróast í frumstig fósturvísis, en ekkert þeirra fengið að þróast fram yfir sex daga þroska.

Haft er eftir prófessor Shoukhrat Mitalipov, yfirmanni miðstöðvar fyrir fósturfrumu- og genameðferð við Oregon-háskóla, að með þessu hafi náðst árangur sem áður hafi þótt útilokaður.

Tæknin enn gölluð

Tæknin er hins vegar sögð ófullkomin, því tilviljun ráði hvaða litninga eggið losar sig við. Það geti leitt til erfðagalla.

Þannig fær eggið kannski tvo af sumum litningum og engan af öðrum. Þá eru einungis um níu prósent tilraunanna sagðar hafa skilað árangri.

„Við verðum að fullkomna ferlið,“ hefur BBC eftir Mitalipov. „En ég tel að þetta sé framtíðin því sífellt fjölgar sjúklingum sem geta ekki eignast börn.“

Alla umfjöllunina má lesa á fréttavef BBC.