Microsoft bregst við áhyggjum af áhrifum Teams á samkeppni

Framkvæmdastjórn ESB væntir þess að með því að stuðla að sanngjarnri samkeppni komi aðgerðir Microsoft til með að opna markaðinn fyrir aðra veitendur samskipta- og samvinnuforrita í Evrópu.

Skrifstofuhugbúnaður Microsoft Office á símaskjá.
Microsoft forrit á símaskjá. Mynd/Ed Hardie á Unsplash

Evrópusambandið (ESB) hefur fallist á vilyrði Microsoft um að bregðast áhyggjum sambandsins af áhrifum samvinnuvettvangsins vinsæla, Teams, á samkeppni. Fram kemur í tilkynningu framkvæmdastjórnar ESB að skuldbindingar fyrirtækisins um aðgerðir verði héðan í frá lagalega bindandi samkvæmt samkeppnisreglum sambandsins.

Með skuldbindingum sínum bregst Microsoft við áhyggjum framkvæmdastjórnarinnar vegna tengingar Microsoft Teams við annan skrifstofuhugbúnað fyrirtækisins, Word, Excel, PowerPoint og Outlook, sem eru hluti af Office 365 og Microsoft 365 hugbúnaðarvöndlum fyrir fyrirtæki.

Microsoft hefur skuldbundið sig til að:

  1. Bjóða útgáfur af þessum hugbúnaðarvöndlum á lægra verði án Teams.
  2. Heimila viðskiptavinum með langtímaleyfi að skipta yfir í útgáfur án Teams.
  3. Tryggja samvirkni lykilþátta Teams milli samkeppnisforrita Teams og ákveðinna Microsoft forrita.
  4. Gera viðskiptavinum kleift að flytja gögn sín úr Teams til að auðvelda notkun samkeppnislausna.

Framkvæmdastjórnin væntir þess að með því að stuðla að sanngjarnri samkeppni komi þessar aðgerðir Microsoft til með að opna markaðinn fyrir aðra veitendur samskipta- og samvinnuforrita í Evrópu.

Haft er eftir Teresu Ribera, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB á sviði grænna, réttlátra og samkeppnishæfari umskipta og framkvæmdastjóra samkeppnismála, að samtök stór og smá um alla Evrópu og víðar treysti mikið á fjarfundabúnað, spjall og samvinnutól, sér í lagi eftir kórónuveirufaraldurinn.

Teresa Ribera
Teresa Ribera, varaforseti á sviði grænna, réttlátra og samkeppnishæfari umskipta og framkvæmdastjóri samkeppnismála hjá framkvæmdastjórn ESB. Mynd/ESB

„Með ákvörðun dagsins gerum við lagalega bindandi í sjö ár eða lengur skuldbindingar Microsoft um að binda endi á framkvæmd sem kann að hafa hindrað samkeppnisaðila í að keppa við Teams á skilvirkan máta. Ákvörðunin opnar því fyrir samkeppni á þessum mikilvæga markaði og tryggir að fyrirtæki geti valið samskipta- og samvinnutól sem hentar þeirra þörfum best,“ segir hún.

Framkvæmdastjórn ESB hóp formlega samkeppnisrannsókn á því hvort framkvæmd Microsoft við dreifingu Teams bryti gegn samkeppnisreglum ESB eftir formlega kvörtun frá Slack Technologies, Inc., í júlílok 2023. Í kjölfar annarrar kvörtunar frá alfaview GmbH, þann í lok júní 2024, hóf framkvæmdastjórnin svo aðra samkeppnisrannsókn.

Fram kemur í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar að eftir að rannsóknin hafi hafist hófst, árin 2023 og 2024, hafi Microsoft gert ákveðnar breytingar á dreifingu Teams, svo sem að bjóða upp á suma hugbúnaðarpakka án Teams.

„Framkvæmdastjórnin komst að þeirri bráðabirgðaniðurstöðu að þessar breytingar væru ófullnægjandi til að bregðast við áhyggjum hennar og að umfangsmeiri breytingar væru nauðsynlegar til að binda endi á samkeppnishamlandi tengingarvenjur og áhrif þeirra.“