Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sektað fyrirtækin Eurofield SAS og móðurfélag þess á þeim tíma, Unanime Sport SAS, um sem svarar 25 milljónum króna (eða um 172 þúsund evrur) vegna ófullnægjandi svara við upplýsingabeiðni í tengslum við rannsókn framkvæmdastjórnarinnar á gervigrasmarkaðnum.
Í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar kemur fram að Eurofield hafi fengið formlega beiðni um upplýsingar í júní 2023.
„Eftir að hafa metið svörin og borið saman við gögn sem safnað var við óvænta leit, kom í ljós að þau voru ekki fullnægjandi,“ segir þar.
Því hafi önnur beiðni verið send í október 2023, að þessu sinni með ákvörðun, þar sem fyrirtækið var upplýst um áhyggjur framkvæmdastjórnarinnar. Svörin hafi enn verið ófullnægjandi.
Fram kemur að í nóvember í fyrra hafi svo hafist formleg rannsókn á meintum brotum á verklagsreglum. Eurofield og Unanime Sport hafi samþykkt að vinna með framkvæmdastjórninni, viðurkennt ábyrgð og samþykkt að greiða sekt. Þá hafi fyrirtækin líka afhent skjöl sem áður hafði verið sleppt, auk viðbótargagna sem framkvæmdastjórnin vissi ekki fyrir að hefðu átt að fylgja.
Vísað er til heimilda framkvæmdastjórnarinar til að leggja sektir á fyrirtæki sem veiti rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar, allt að einu prósenti af heildarveltu þeirra.
Í þessu tilviki hafi mat framkvæmdastjórnarinnar verið að sekt sem svaraði 0,3 prósentum af sameiginlegri veltu fyrirtækjanna, væri viðeigandi og af því fyrirtækin hafi sýnt samstarfsvilja við rannsóknina hafi upphæðin svo verið lækkuð um 30 prósent, í 172 þúsund evrur.
„Sektin er lögð á bæði Eurofield og Unanime Sport sameiginlega og til samábyrgðar, þar sem Unanime Sport var móðurfélag á þeim tíma og ber ábyrgð samkvæmt reglum um ábyrgð móðurfélaga,“ segir í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar.
Sömuleiðis kemur fram að rannsókn framkvæmdastjórnarinnar á gervigrasmarkaðnum haldi áfram og sé óháð ákvörðuninni um sekt sekt á hendur þessum fyrirtækjum vegna ófullnægjandi upplýsingagjafar.