Hluti af nýrri öryggisvirkni TikTok sem kynnt var í vikunni er viðvörunarkerfi fyrir foreldra ungmenna, sem nú geta fengið tilkynningu þegar barn þeirra birtir opinbert myndband.
Í umfjöllun Sky News segir að aukin vernd sem samfélagsmiðillinn TikTok bjóði upp á komi strax í kjölfar nýrra reglna um öryggi á netinu sem innleiddar hafi verið í Bretlandi.
„Með því að nota fjölskyldupörun [e. family pairing] í stillingum TikTok geta foreldrar nú fengið viðvörun þegar ungmenni þeirra hafa birt opinbera færslu,“ segir í frétt Sky News.
Sömuleiðis geti foreldrar jafnframt fengið tilkynningu þegar barn þeirra tilkynnir myndband, þó þeir geti ekki séð tilkynnta efnið.
Þá segir í umfjölluninni að önnur ný verkfæri sem kynnt hafi verið gefi notendum kost á að hafa betur stjórn á athugasemdum við færslur þeirra og hvernig samskiptum áhangenda við þá er háttað.
„TikTok hefur boðið upp á foreldraeftirlit fyrir reikninga ungmenna í meira en fimm ár. Þá bjóða önnur samfélagsmiðlaforrit, svo sem Instagram, einnig upp á að foreldrar og börn tengi saman aðganga sína.“
Leiðbeiningar Sky News um hvernig kveikt er á pöruninni:
- Vilji foreldri eða ungmenni virkja „family pairing“ á TikTok þarf fyrst að fá samþykki hjá aðganginum sem parað er við. Þá þarf fólk að hafa TikTok aðgang.
- Í TikTok appinu á að ýta á „Profile“, eða prófíl, neðst á skjánum. Táknið er eins og lítil manneskja.
- Síðan á að ýta valmyndarhnappinn efst, sem lítur út eins og þrjár láréttar línur, hver ofan á annarri.
- Þá er smellt á „Settings and Privacy“, eða stillingar og friðhelgi, þar sem er að finna lengri fellivalmynd.
- Skrunað er niður að og smellt á „Family pairing“ og svo á „Continue“ til að halda áfram.
- Næst þarf að velja hvort notandinn er foreldri eða ungmenni (Parent eða Teen).
- Ef það er foreldri sem kveikir á virkninni þarf ungmenni þess að skanna QR kóða sem upp kemur með appi sínu, til að tengja aðgangana saman.
- Ef notandinn er ungmenni það þarf það að skanna kóða sem reikningur foreldrisin býr til eftir að hafa skrefunum hér að ofan.
- Instagram býður einnig upp á foreldraeftirlitsstillingar sem hægt er að setja upp.
Í samtali við Sky News sagði Ali Law, yfirmaður opinberrar stefnumótunar hjá TikTok í Bretlandi, að miðillinn liti á netöryggi sem „kapphlaup sem aldrei gæti unnist“ og að fyrirtækið ætli að halda áfram að uppfæra vernd fyrir aðganga ungmenna að forritinu.
„Við sáum í rannsókn sem við komum að með Internet Matters að það hefur jákvæð áhrif á líðan ungmenna þegar þau finna að þau hafi stjórn á hegðun sinni og venjum á netinu,“ sagði Ali Law við Sky News.
Eins kunni ungmenni að meta það þegar foreldrar þeirra hjálpi þeim að aðgæta og skilja friðhelgis- og öryggisstillingar.
Áhugasamir geta nálgast ítarlegri umfjöllun Sky News um málið HÉR.