Gera ráð fyrir 2,0 prósenta verðbólgu á evrusvæðinu

Sautjánda þessa mánaðar birtir Eurostat endanlegar tölur um verðbólgu á evrusvæðinu í júní.

Mynd: Roman Wimmers á Unsplash.

Gert er ráð fyrir að tólf mánaða verðbólga á evrusvæðinu verði 2 prósent í júní og hafi þá aukist um 0,1 prósentustig frá fyrra mánuði, samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.

Þjónusta virðist vega þyngst í breytingunni á milli mánaða í evrulöndunum að sögn Eurostat með 3,3 prósenta hækkun í júní, miðað við 3,2 prósent í maí.

Þar á eftir koma áhrif hækkana á matvælum, áfengi og tóbaki, 3,1 prósent, miðað við 3,2 prósent í maí, og svo iðnaðarvörur utan orkugeirans (0,5 prósent í júní, var 0,6 prósent í maí) og svo orkukostnaður sem gert er ráð fyrir að minnki um 2.7 prósent í júní, eftir að hafa dregist saman um 3,6 prósent í maí.

Löndin sem eru undir í mælingunni og nota evruna eru Belgía, Þýskaland, Eistland, Írland, Grikkland, Spánn, Frakkland, Króatía, Ítalía, Kýpur, Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Holland, Austurríki, Portúgal, Slóvenía, Slóvakía og Finnland.

Á Íslandi jókst verðbólga um 0,84 prósent á milli mánaða í síðustu mælingu, en hér á landi stendur 12 mánaða verðbólga í 4,2 prósentum.