Samfélagsmiðlar og myndbandsveitur taka fram úr hefðbundnum fréttamiðlum

Rannsókn þessa árs kemur út á tímum mikillar pólitískrar og efnahagslegrar óvissu, auk hræringa og átaka í alþjóðasamskiptum.

Reuters Institute Digital News Report 2025
Ný skýrsla Reuters Institute um stafræna fréttamiðlun.

Samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn frá Reuters Institute hafa samfélagsmiðlar og myndbandsveitur á borð við Facebook, X (áður Twitter) og YouTube, tekið fram úr hefðbundnum miðlum á borð við sjónvarp og fréttavefsíður sem algengustu fréttaveitur í Bandaríkjunum.

Fram kemur í frásögn BBC af rannsókninni að yfir helmingur (54%) fólks sæki fréttir í gegnum samfélagsmiðla, samanborið við 50% sem horfi á fréttir í sjónvarpi og 48% sem noti fréttavefi eða öpp.

Fram kemur í rannsókninni að þróunin sé ekki einskorðuð við Bandaríkin því víða aukist hlutur samfélagsmiðlastarna og samfélagsmiðla í miðlun frétta. Breytingin virðist þó eiga sér stað örar í Bandaríkjunum en víðast hvar annars staðar.

Joe Rogan mest áberandi

Samkvæmt rannsókninni er hlaðvarpsstjórnandinn Joe Rogan sá sem flestir höfðu rekist á í tengslum við fréttir eða umfjöllun, en tæpur fjórðungur (22%) Bandaríkjamanna sagðis hafa séð efni frá honum í vikunni fyrir könnunina.

BBC hefur eftir Nic Newman, höfundi skýrslunnar, að aukin áhersla á myndbandsveitur og „persónudrifnar“ fréttir sé einn ein stór áskorun fyrir hefðbundna fjölmiðla.

Hefðbundnir miðlar sniðgengnir

Þá kemur einnig fram í rannsókninni að æ fleiri stjórnmálamenn kjósi fremur að veita viðtöl við vinsælar samfélagsmiðlastjörnur eða hlaðvarpsstjórnendur í stað hefðbundinna fjölmiðla. Þannig njóti þeir mikillar dreifingar og séu síður spurðir erfiðra spurninga. Þá hafi hluti þessara áhrifavalda verið bendlaðir við rangfærslur og fleira misjafnt.

„Þrátt fyrir vinsældir eru áhrifavaldar og samfélagsmiðlastjörnur taldir, að mati 47% svarenda, meðal helstu uppsprettna rangra eða villandi upplýsinga,“ segir í umfjölluninni.

Vantraust til þeirra sé því sambærilegt við afstöðu til stjórnmálamanna.

X heldur velli með breyttum hópi notenda

Notkun X til fréttalesturs er ýmist sögð stöðug eða vaxandi í mörgum löndum, sérstaklega í Bandaríkjunum.

„Eftir að Elon Musk tók yfir miðilinn árið 2022 hefur notkun meðal hægrisinnaðra, sérstaklega ungra karla, aukist verulega, á meðan frjálslyndari hópar hafa dregið sig í hlé.“

Fram kemur að í Bandaríkjunum hafi hlutfall notenda sem skilgreina sig sem hægrisinnaða þrefaldast eftir yfirtöku Musk. Í Bretlandi hafi sá hópur nær tvöfaldast.

Keppinautar X á borð við Threads, Bluesky og Mastodon hafi lítil áhrif á heimsvísu, en þá miðla noti einungis tvö prósent, eða færri, til að fylgjast með fréttum.

Aðrar áhugaverðar niðurstöður:

  • TikTok er ört vaxandi fréttamiðill. 17% heimsbyggðarinnar notar hann til að fylgjast með fréttum, sem er aukning um fjögur prósentustig frá fyrra ári.
  • Notkun gervigreindarspjallmenna sem uppsprettu frétta eykst og er nú tvöfalt algengari meðal fólks undir 25 ára aldri.
  • Flestir telja að gervigreind dragi úr gagnsæi, nákvæmni og trausti á fréttaflutning.
  • Allir aldurshópar setja enn traust sitt á áreiðanlega og gróna fréttamiðla, jafnvel þótt þeir noti þá sjaldnar en áður.

Er þetta í fjórtánda sinn sem rannsókn Reuters Institute kemur út, en hún byggir á svörum tæplega 100 þúsund einstaklinga í 48 löndum.

Fjallað er ítarlega um skýrsluna og efni hennar á vefsíðu Reuters Institute, en einnig er hægt að sækja hana í PDF-skrá.