Kvikmyndaver í mál við gervigreindarfyrirtæki

Risar Hollywood takast í fyrsta sinn á við gervigreindarfyrirtæki vegna meintra brota á höfundarrétti.

Samsett mynd.
Úr málsskjölum Disney og Universal í málarekstri fyrirtækjanna á hendur gervigreindarfyrirtækinu Midjourney.

Framleiðslufyrirtækin Disney og Universal hafa höfðað mál á hendur gervigreindarfyrirtækinu Midjourney fyrir brot á höfundarrétti.

Málið er umfangsmikið, en í málsskjölunum, sem telja 110 blaðsíður og voru lögð fram fyrir rétti í Los Angeles í Bandaríkjunum, er farið yfir hvernig Midjourny hefur hagnýtt sér, án leyfis, fjölda þekktra persona framleiðendanna, allt frá Svarthöfða í heimi Star Wars, yfir í Simpsons, Shrek og aðrar teiknimyndafígúrur.

Í stefnunni segir að Disney og Universal hafi í meira en 100 ár glatt áhorfendur um heim allan með því að fjárfesta í og hlúa að bandarískri sköpun og framleiða nokkrar af bestu kvikmyndum og skálduðum persónum allra tíma.

„Midjourney leitast hins vegar við að hagnýta sér skapandi fjárfestingu stefnenda með því að selja gervigreindarþjónustu („Image Service“) sem virkar eins og sýndar-sjálfsali, sem framleiðir óteljandi óleyfileg afrit af höfundarréttarvörðum verkum Disney og Universal,“ segir í stefnunni.

Í skjölunum er að finna ítarlegan viðauka með myndum sem sýna eiga fram á hvernig Midjourney hafi stolið „óteljandi“ höfundarréttarvörðum verkum til að þjálfa gervigreindarvél sína í að framreiða myndefni.

Í umfjöllun NPR um málið kemur fram að fjöldi fyrirtækja hafi áður höfðað mál á hendur gervigreindarfyrirtækjum vegna brota á höfundarrétti, svo sem The New York Times sem höfðað hafi mál gegn OpenAI og Microsoft, Sony Music Entertainment gegn fyrirtækjunum Suno og Udio og Getty Images sem höfðað hafi mál gegn Stability AI.

„En þetta er í fyrsta skipti sem stór Hollywood-fyrirtæki taka þátt í baráttunni gegn gervigreindarumhverfinu,“ segir þar.

Áhugasamir um málið geta einnig kíkt á umfjöllun Danmarks Radio og BBC.