Fyrstu myndir geimfars af suðurpól sólar

Frá jörðu sjást ekki breytingar á yfirborði sólar, en með sérstökum síum og greiningu á ólíkum tíðnisviðum sjá vísindamenn hana raunverulegri mynd, sem kraftmikinn fljótandi gasrisa þar sem segulsvið snúast og vefjast um yfirborðið og mynda sólblossa og gasboga sem rísa upp í lofthjúp hennar.

Úr myndbandi. Suðurpóll sólar.

Fyrstu myndbandið og ljósmyndirnar sem teknar hafa verið af suðurpóli sólarinnar hafa nú borist til jarðar frá Solar Orbiter geimfari Evrópsku geimvísindastofnunarinnar (ESA).

Í umfjöllun Breska ríkisútvarpsins, BBC, eru þessar nýju myndir sagðar gera vísindamönnum kleift að rannsaka hvernig sólin sveiflast milli stormaskeiða og rólegra tímabila.

Aukin vitneskja um sveiflurnar eru mikilsverðar því sólstormar og tímabil aukinnar geislunar geta truflað fjarskipti um gervihnött og jafnvel valdið rafmagnstruflunum á jörðinni.

Nýju myndirnar sýna bjartan flöktandi lofthjúp sólar sem sums staðar getur náð allt að milljón gráðu hita á Celsíus. Á milli getur á að líta dekkri gas­ský sem, þrátt fyrir að vera svalari, eru engu að síður um 100 þúsund gráða heit.

BBC hefur eftir prófessor Carole Mundell, vísindastjóra ESA, geimvísindastofnunar Evrópu, að ekki hafi áður verið teknar jafnnákvæmar myndir af sólinni, né jafnnærri henni. Þær komi til með að munu hjálpa vísindamönnum að skilja betur virkni sólar betur.

„Sólin er okkar næsta stjarna, lífsgjafi og mögulegur þrándur í götu nútímatækni í geimi og á jörðu. Þess vegna er nauðsynlegt að við skiljum virkni hennar og lærum að spá fyrir um hegðun hennar,“ segir hún.

Myndbandið og nánari umfjöllun um gögnin sem nú er verið að greina er að finna í umfjöllun BBC.