Var órótt í baðinu — laumumyndatökur hafa aukist mjög

Nærri fjórðungsaukning hefur orðið á glæpum tengdum gægjum og strípihneigð í Bretlandi. Málum sem varða laumumyndatökur hefur fjölgað mjög.

camera lens
Mynd: Sixteen Miles Out/Unsplash

Svokallaðar njósnamyndavélar er víða hægt að kaupa og fela svo í hversdagslegum hlutum á borð við spegla, gerfireykskynjara eða koma koma fyrir á almenningssalernum. Í umfjöllun breska dagblaðsins The Guardian kemur fram að heimilisofbeldismenn hafi í auknum mæli beitt myndavélum og laumueftirliti og fórnarlömb slíkra glæpa segi of auðvelt að komast upp með verknaðinn.

Haft er eftir konu að nafni Heidi Marney að í fyrsta sinn sem hún fór í bað, nýflutt í leiguhúsnæði, hafi hún haft á tilfinningunni að verið væri að fylgjast með henni.

„Mér fannst mjög sterkt að verið væri að horfa á mig,“ segir hún við Guardian og rifjar upp að hafa horft í kring um sig á baðherberginu. „Sem var stórt, með tvöföldu baðkari og fyrir ofan það, á veggnum, var sjónvarp og neðan úr því hékk tæki sem með blikkandi rauðu ljósi.“

Hún sendi vini mynd af tækinu, sem sagði henni að þetta væri svokallaður tengi-döngull, hann ætti einn slíkan sjálfur til að hægt væri að horfa á sjónvarp víða í húsinu.

Heidi segist hafa treyst leigusala sínum vel og ekki trúað upp á hann nokkru illu og því ýtt þessum vangaveltum frá sér.

„En svona hugboð hunsa ég aldrei aftur.“

Tæpu ári síðar fann hún myndavél í húsinu. Þetta var árið 2019 og hún hafði flutt inn í lítið sveitabýli eigu Roberts nokkurs Holden, á fyrrum sveitabæ í Sowerby Bridge í Vestur-Yorkshire, í Bretlandi.

Holden var frændi frændi hálfsystur Heidi og þannig séð í fjölskyldunni. Hann var líka þekktur og vel liðinn í samfélaginu, sveitarstjóri verðlaunaður fyrir þjónustu sína samfélagshjálp.

Málið komst í hámæli og er eitt fárra sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum, en Holden hafði tekið myndir af Heidi í tæpt ár og svo upplýstist að hann hafði stundað faldar myndatökur af konum í nærri 15 ár. Hann var í september síðastliðnum dæmdur í sex ára og tveggja mánaða fangelsi.

Guardian segir svipuðum málum hafa fjölgað mjög þó að fá rati í fréttir.

  • „Bara í þessum mánuði var læknir fangelsaður fyrir að hafa í meira en þrjú ár myndað gesti í Airbnb-gististað hans í Glasgow og notað til þess faldar myndavélar í svefnherbergjum og baðherbergjum.“

Vélarnar voru dulbúnar sem lofhreinsitæki og reykskynjarar.

Þá er vitnað til fleiri mála í Bretlandi, svo sem máls ljósmyndarans Davids Glover, sem tók upp meira en 100 konur með því að nota leynilegar myndavélar í búningsklefum vinnustofu sinnar.

Einnig máls Adams Devaney , sem notaði myndavél dulbúna sem penna til að taka upp myndir af samstarfsmönnum sínum á salerni vinnustaðar hans í Norður-Yorkshire.

Og máls Adams Dennis og Roberts Morgan, sem beittu földum myndavélum til að taka upp myndefni af yfir 5.000 manns í búningsklefum og salernum í sundlaugum í London og Surrey. Myndunum deildu þeir svo á netinu.

Guardian segir miður að ekki flokkaðir séu saman glæpir tengdir gægjum og strípihneigð, en á síðasta ári hafi málum í þeim málaflokki fjölgað um 24% í Bretlandi. Það sé meðal annars vegna þessarar aukningar sem bresk stjórnvöld herði nú löggjöf um faldar myndavélar.

Slíkar vélar sé auðvelt að nálgast, svo sem í sérverslunum með njósnavörur, eða í vefverslunum á borð við Amazon og eBay. Oft séu tækin dulbúin sem klukkur, millistykki, ljósmyndarammar, rakatæki, og jafnvel einnota kaffibollar. Á Íslandi voru nýlega fréttir af upptökum með myndavél sem falin var í kókómjólkurfernu.

Í breskum rétti er glæpsamlegt að taka fólk upp við athæfi sem skilgreint er að falli undir einkalíf, svo sem í kynlífi, eða ef upptakan er ætluð til að valda fólki vanlíðan. Þá mun refsivert að setja upp búnað sem ætlaður er til að taka kynferðislegar myndir án samþykkis, jafnvel þó að engar myndir hafi verið teknar.

Heidi Marney þykir löggjöfin ganga allt of skammt og furðar sig á að njósnamyndavélar skuli yfir höfuð vera lögleg vara. „Möguleikinn á misnotkun er svo mikill og augljós,“ segir hún og kveður slíkar upptökur miklu mun algengari en fólk geri sér grein fyrir.

Dr. Vicky Lister, við sálfræðideild Háskólans í Kent, staðfestir þetta við The Guardian. Mál sem upp komi séu bara brot af heildarfjölda tilvika. Mörg mála sem upp komi séu vegna brota sem staðið hafi yfir um árabil og fá mál leiði til ákæru.

Af yfir 10 þúsund málum sem upp komu árið 2020 enduðu innan við 600 fyrir dómstólum.

Í umfjöllun The Guardian er jafnframt ítarlega greint frá málum tveggja kvenna sem voru fórnarlömb slíkra gægjuglæpa.