Nýjasta tækni gefur vísi að ofurmannlega sjón. The Guardian í Bretlandi greinir frá því að þróaðar hafi verið augnlinsur sem geri fólki kleift að sjá innrautt ljós, sem er innan þess hluta rafsegulrófsins sem ósýnilegur er berum augum.
Augnlinsurnar eru ólíkar nætursjónaukum á þann máta að þær þurfa ekki orkugjafa og af því þær eru gegnsæjar geta notendur samtímis séð bæði innrauða geislun og hefðbundið sýnilegt litróf.
Einn milljónasti úr millimetra
The Guardian hefur eftir prófessor Tian Xue, taugavísindamanni við kínverska Vísinda- og tækniháskólann, að þessi þróunin opni dyr að gerð margvíslegum augnlinsum, gleraugum og öðrum klæðanlegum tækjum sem veitt geti fólki „ofursjón“. Þá geti tæknin einnig hjálpað fólki með litblindu.
Linsurnar eru nýjasta afurð teymisins í viðleitni til að víkka sjónsvið manna út fyrir náttúruleg mörk þess. Ljósbylgjur sem sýnilegar eru fólki eru innan við einn hundraðasti hluti úr prósenti af rafsegulrófinu.
„Yfir helmingur sólgeislunarorkunnar, sem birtist sem innrautt ljós, er ósýnilegur mönnum,“ segir Dr. Yuqian Ma, einn rannsakenda í verkefninu.
Þá segir í umfjöllun Guardian að regnboginn sem menn sjái spanni bylgjulengdir frá 400 til 700 nanómetrum, en nanómetri er milljónasti hluti úr millimetra.
„En mörg önnur dýr skynja heiminn á annan hátt. Fuglar, býflugur, hreindýr og mýs geta séð útfjólublátt ljós, en bylgjur þess eru of stuttar fyrir mennsk augu,“ segir þar.
Þá nemi sumir snákar og blóðsuguleðurblökur fjarinnrautt ljós, eða varmageislun, sem hjálpi þeim við veiðar.
Prófað að sprauta í auga
Til að víkka sjónsviðið og efla sjónskynjun fólks hafi vísindamennirnir þróað svonefndar upptíðnibreytanlegar nanóagnir. Þær gleypa í sig innrautt ljós og endurvarpa sem sýnilegu ljósi.
Í rannsókninni urðu fyrir valinu agnir sem gleypa nærinnrautt ljós, með bylgjulengdir sem eru aðeins of langar fyrir mannlegt auga, og þeim breytt í sýnilega rauða, græna eða bláa geislun.
Í fyrri rannsóknum var músum gefin nærinnrauð sjón með því að sprauta upptíðnibreytanlegum nanóögnum undir sjónhimnuna þeirra, ljósnæma himnu aftan á auganu. Þar sem slíkar tilraunir á fólki yrðu seint færar var leitað leiða með minna ígripi.
Linsur þóttu betri kostur
Í tímaritinu Cell lýsa vísindamennirnir hvernig þeir bjuggu til mjúkar snertilinsur með uppbreytanlegum nanóögnum. Með þær gátu notendur séð merki lík morskóða frá innrauðum LED ljósgjafa og greint hvaðan ljósið kom.
Með því að loka augunum batna skynjunin á innrauðu geislunum því augnlokin sía út meira af sýnilegu ljósi en innrauði. Því var minni birta sem truflaði.
Linsurnar eru því ekki enn nógu næmar til að greina náttúrulega lága innrauða geislun og af því hiti gefur frá sér fjærinnrautt ljós þá veita þær ekki varmasjón. Vísindamennirnir segja þó að framtíðarþróun teymisins snúi að því að gera linsurnar öflugri.
Xue segir framtíðarþróun geta orðið til þess að linsurnar greini innrautt ljós í umhverfinu, en jafnvel þó að ekki náist að þróa fullkomna innrauða sjón sér hann möguleika við notkun tækninnar. Til dæmis gætu leynileg skilaboð send með innrauðu ljósi aðeins verið sýnileg þeim sem bera linsurnar.
Þá gæti svipuð nálgun hjálpað litblindu fólki með því að umbreyta bylgjulengdum sem það sér ekki í liti sem það getur greint.