England verður fyrsta land í heiminum til að bjóða upp á bólusetningu gegn lekanda, sem er algengur kynsjúkdómur. Frá þessu er greint á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC.
Ekki munu þó allir eiga þess kosta að láta bólusetja sig, því fyrst í stað er áhersla lögð á samkynhneigða og tvíkynhneigða karlmenn sem hafa sögu um marga kynlífsfélaga eða fyrri kynsjúkdóma, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.
Þá segir að um 30 til 40 prósent árangur sé af bóluefninu og vonast til að með notkun þess dragi úr ört vaxandi fjölda smita. Árið 2023 voru greind yfir 85.000 tilfelli lekanda í Englandi, sem er það mesta sem sést hefur frá því skráningar hófust árið 1918.
Hér á landi hefur á síðustu árum líka orðið vart aukinnar útbreiðslu lekanda og sárasóttar. Á vef Landlæknis kemur fram að sam- og/eða tvíkynhneigðir íslenskir karlmenn á aldrinum 20–44 ára virðist vera helsti áhættuhópurinn fyrir þessar sýkingar. „Og er aukningin í samræmi við faraldsfræði þessara sýkinga í vestrænum löndum,“ segir þar.
Til að bregðast við þróuninni hér bendir sóttvarnalæknir á nýútkomnar „Leiðbeiningar sóttvarnalæknis um greiningu og meðferð lekanda, klamydíu, sárasóttar og HIV“, sem unnar voru í samvinnu fjölda innlendra sérfræðinga.
Lekandi veldur ekki alltaf einkennum, en þau geta verið sársauki, óvenjuleg útferð, bólgur á kynfærum og jafnvel ófrjósemi. Í frétt BBC segir að óvíst sé hversu margir komi til með að þiggja bólusetningu, en spár frá Imperial College London sýna að ef bóluefnið verður vinsælt gæti það komið í veg fyrir allt að 100 þúsund smit og sparað heilbrigðiskerfinu um 8 milljónir punda, sem svarar til tæplega 1,4 milljarða króna, á næstu tíu árum.
Stefnt er að því að bólusetningar hefjist í ágúst.
Ekki hannað sérstaklega fyrir lekanda
Fram kemur í umfjöllun BBC að bóluefnið sem notað verður sé í raun MenB-bóluefni gegn heilahimnubólgu sem nú þegar er gefið ungabörnum. Bakteríurnar sem valdi þessum tveimur sjúkdómum séu svo skyldar að bóluefnið virðist draga úr lekandatilfellum um þriðjung.
Áfram þurfi því umræðu um kynheilbrigði og ábyrga kynlífshegðun, því bóluefnið útiloki ekki smit. Lekandi smitast oftast við kynlíf án smokks og smokkurinn sé enn besta vörnin. Sterkasta ráðið í baráttu við lekanda sé að forðast smit.
Ákvörðun um notkun bóluefnisins til að fást við lekanda er um leið ekki einvörðungu sögð byggja á fjölda smita, heldur því að lekandi verði sífellt erfiðari viðureignar. Bakterían sem veldur lekanda hefur í áratugi þróað með sér sýklalyfjaónæmi og núverandi meðferð einnig sögð í hættu. Sumir læknar eru sagði óttast að lekandi verði einn daginn ólæknandi.