Næstum 200 ríki hafa heitið því að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 gráður á Celcius, en vísindamenn vara við því að það tryggi samt ekki öryggi strandbyggða. Jafnvel þó markmiðið náist komi það ekki til með að stöðva áframhaldandi bráðnun jökla og hækkun sjávarmáls. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem BBC greinir frá.
1,5 gráður ekki „öruggt“ markmið
„Að takmarka hlýnun við 1,5 gráður væri stórfenglegur árangur – en það mun ekki stöðva hækkun sjávarmáls,“ hefur BBC eftir prófessor Chris Stokes, jöklafræðingi við Durham-háskóla.
Hann segir þrjá meginþætti vera áhyggjuefni. Í fyrsta lagi segi jarðsagan sitt, en fyrir 125.000 árum, þegar hitastig var svipað og nú, hafi sjávarmál verið nokkrum metrum hærra. Og fyrir þremur milljónum ára, þegar koltvísýringur í andrúmslofti var álíka mikill og í dag, hafi sjávarmál verið 10 til 20 metrum hærra.
Í öðru lagi sýni nútímamælingar aukna bráðnun, svo sem í jöklum á Grænlandi. Og í þriðja lagi sýni spálíkön áframhaldandi hækkun sjávarmáls, jafnvel þótt hlýnun stöðvist við 1,5 gráður.
Milljónir í hættu
Fram kemur í umfjölluninni að um 230 milljónir manna búi á svæðum sem eru bara einum metra frá núverandi flóðamörkum. Hækki sjávarmál um einn sentimetra á ári eða meira fyrir lok aldarinnar, líkt og sum spálíkön gera ráð fyrir, gæti ástandið orðið óviðráðanlegt, jafnvel fyrir auðug ríki.
„Við gætum séð landflótta í mælikvarða sem við höfum aldrei áður séð í nútímasamfélagi,“ hefur BBC eftir prófessor Jonathan Bamber við Bristol-háskóla.
Ekki er öll von úti
Þrátt fyrir dökka mynd leggja vísindamenn þó áherslu á að hvert brot úr gráðu skipti máli. Því minni sem hlýnunin verður, þeim mun minni verður bráðnun jökla og hækkun á sjávarmáli.
„Því hraðari sem hlýnunin er, því hraðari verður bráðnunin,“ segir prófessor Stokes. „Hver einasta brot úr gráðu skiptir máli fyrir jöklana.“